

Áætlað er að slátra 1.000 lömbum á dag í forslátrun á Hvammstanga daganna 15., 19., 21., 23., 26., 28. og 30. ágúst. Álag verður greitt ofan á grunnverð í ágúst fyrir lömb sem ná að lágmarki 12 kg. Sláturtíð byrjar svo í viku 36 í báðum húsum og áætlað að greiða álag á lambainnlegg í viku 36 og 37.
Vika | 33 | 34 | 35 | 36 | 37 |
Álag | 22,5% | 15% | 10% | 6% | 3% |
Greitt verður fyrir ágúst innlegg 10. Sept.
Vegna útfarar samstarfskonu okkar
Sigrúnar Kristínu Þórðardóttur
Verður lokað þann 26. apríl frá kl.11.00
Sláturhús KVH
Panta þarf tímanlega fyrir slátrun á sauðfé. Þeir sem hafa hug á að slátra á einhverjum ákveðnum dögum í haust verða að vera búnir að panta fyrir 15. ágúst. Eftir það verður byrjað að fylla á daganna.
Áætlað er að hefðbundin sláturtíð hefjist miðvikudaginn 4. sept. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um sumarslátrun.
Nokkur atriði sem vert er að hafa í huga.
Innleggjendur eru hvattir til að fylgjast með hérna á heimasíðunni og kynna sér s.s. hvað hafa ber í huga fyrir flutning, nýjir innleggjendur, heimtökureglur o.fl. og jafnframt fara yfir afurðainnlegg sem næst sláturdegi.
Ágæti sauðfjárbóndi!
Nú er birgðatalningum lokið og verið að vinna að ársuppgjöri afurðastöðvanna. Eins og áður hafði verið sagt, þá yrði það skoðað hvort hægt væri að greiða viðbótargreiðslu á innlegg síðasta hausts að ári loknu.
Sláturtíðin gekk í raun ágætlega og sala á afurðum hefur gengið nokkuð vel. Það liggur nú fyrir, að veiking íslensku krónunnar reyndist meiri heldur en við þorðum að byggja áætlun okkar á í haust og hefur það komið okkur til tekna. Því hefur verið tekin ákvörðun hjá Sláturhúsi KVH og Kjötafurðarstöð KS um að greiða viðbótargreiðslu á lambakjötsinnlegg s.l. hausts.
6,04% verður greitt á innlegg í september og október og 10% á innlegg ágústmánaðar sem verður reikningsfært 20 janúar.