Afmælisbarn vikunnar í Sláturhúsinu er Hannes 🙂
aka the Babymaker
![](https://skvh.is/wp-content/uploads/2020/03/39883684_10217905365292149_3715911704844959744_n.jpg)
Hann Hannes þekkja allir, sonur Bobbu frá Sólbakka og Péturs Jó, bróðir Sveinbjargar SRP, Sigrúnar hans Munda, Birgis (þó ekki The) og Magga í pakkhúsinu.
Hann er ómissandi starfskraftur í Sláturhúsinu (að eigin sögn) og ætlar því brátt að flytja burt um tíma bara til þess eins að við áttum okkur á því hversu mikilvægur hann er.
Hannes er frábær náungi en vill helst að fólk hætti að hringja svona mikið í hann og er alveg prýðisgóður til undaneldis 😉