Vegna útfarar samstarfskonu okkar
Sigrúnar Kristínu Þórðardóttur
Verður lokað þann 26. apríl frá kl.11.00
Sláturhús KVH
Vegna útfarar samstarfskonu okkar
Sigrúnar Kristínu Þórðardóttur
Verður lokað þann 26. apríl frá kl.11.00
Sláturhús KVH
Panta þarf tímanlega fyrir slátrun á sauðfé. Þeir sem hafa hug á að slátra á einhverjum ákveðnum dögum í haust verða að vera búnir að panta fyrir 15. ágúst. Eftir það verður byrjað að fylla á daganna.
Áætlað er að hefðbundin sláturtíð hefjist miðvikudaginn 4. sept. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um sumarslátrun.
Nokkur atriði sem vert er að hafa í huga.
Innleggjendur eru hvattir til að fylgjast með hérna á heimasíðunni og kynna sér s.s. hvað hafa ber í huga fyrir flutning, nýjir innleggjendur, heimtökureglur o.fl. og jafnframt fara yfir afurðainnlegg sem næst sláturdegi.
Ágæti sauðfjárbóndi!
Nú er birgðatalningum lokið og verið að vinna að ársuppgjöri afurðastöðvanna. Eins og áður hafði verið sagt, þá yrði það skoðað hvort hægt væri að greiða viðbótargreiðslu á innlegg síðasta hausts að ári loknu.
Sláturtíðin gekk í raun ágætlega og sala á afurðum hefur gengið nokkuð vel. Það liggur nú fyrir, að veiking íslensku krónunnar reyndist meiri heldur en við þorðum að byggja áætlun okkar á í haust og hefur það komið okkur til tekna. Því hefur verið tekin ákvörðun hjá Sláturhúsi KVH og Kjötafurðarstöð KS um að greiða viðbótargreiðslu á lambakjötsinnlegg s.l. hausts.
6,04% verður greitt á innlegg í september og október og 10% á innlegg ágústmánaðar sem verður reikningsfært 20 janúar.
Birt til upprifjunar
• Afhending – Taka þarf fram ef innleggjandi vill láta senda sér kjötið og hvert. Innleggjandi greiðir kostnað við sendingu. Ef senda á til þriðja aðila bætast 1000 kr án/vsk við hverja sendingu(þennan kostnað greiðir innleggjandi ekki viðtakandi). Afhending á heimtöku verður á 3 til 4 virkum degi frá slátrun milli kl. 10:00 – 12:00 og 13:00 – 14:30 norðast í sláturhúsinu.
Geymslugjald verður sett á þá heimtöku sem ekki er sótt á tilsettum tíma. Geymslugjald fyrir skrokk er kr. 2.947.- pr mánuð í geymslu.
lesa má meira um heimtökureglur/framkvæmd hér
Greiðslufrestur
Innlegg ágúst er greitt 13. sept
Innlegg 3.-15. sept. er greitt 20.sept.
Innlegg 16.-30. sept. er greitt 4. okt.
Innlegg 1.-13. okt er greitt 18. okt.
Innlegg 15.-23. okt er greitt í 8. nóv.