Afurðarverð haust 2026

Afurðaverðskrá sauðfjár 2026

Nú liggur fyrir verðskrá fyrir sauðfjárinnlegg haustsins. Verðskrána má finna HÉR eða undir flipanum „afurðaverð sauðfé“. Undir þessum lið má sjá hvernig mismunandi sláturálag hefur áhrif á verð í hverri viku. Flokkar innan verðskrár hækka mismikið en að jafnaði um 5,1% miðað við innlegg síðasta árs. Álagsgreiðslur í fyrstu vikum sláturtíðar verður með sama hætti og síðasta ár, en ekki verður greitt álag á dilka undir 13,5 kg.

Með þessari breytingu viljum við hvetja bændur til að bata smærri lömb og mæta vilja markaðarins um dilka yfir þessari þyngd.

Líkt og á síðasta ári verður greitt 8% álag ofan á verðskrá haustsins samhliða útgreiðslu innleggs.