Taka þarf fram á fylgibréfi sláturgrips, senda netpóst eða hringja inn eigi síðar en degi fyrir slátrun ef um heimtöku er að ræða.
Ekki er hægt að breyta í heimtöku eftir slátrun.
Gærur og innmatur fylgir ekki heimtöku.
Sláturkostnaður á heimtökudilka er kr. 5.250 á stk. Veittur er 500 kr. afsláttur á fyrstu 15 dilkana.
Afsláttur gerður upp að lokinni sláturtíð.
Fullorðið og veturgamalt 5.750 kr.stk.
7 parta sögun (læri heil, hækill hafður á, hryggur heill, frampartar heilir og slög heil) er innifalin í sláturkostnaði.
Fínsögun 1.050 kr. stk.
Flutningur á heimtöku
Flutningur á heimtöku er innleggjanda að kostnaðarlausu á næsta móttökustað vöruflutninga (Vörumiðlun, Samskipa, Eimskipa).
FRAMKVÆMD OG REGLUR UM HEIMTÖKU SAUÐFJÁR
Ekki er tekið sérstakt gjald fyrir 7 parta sögun en kr. 1.050 á stk fyrir fínsögun. ATHUGIÐ! eftirásögun er ekki í boði í sláturtíð.
Innmatur fylgir ekki heimtöku.
Kostnaður vegna úrkasts er kr. 600. fyrir stykkið.
kostnaður vegna úrkasts fullorðið er 1.200 kr stk
Mikilvægt er að fylla út eyðublað vegna heimtöku og senda með bílstjóra eða senda í tölvupósti. Eyðublöðin má finna undir flipanum Eyðublöð á heimasíðunni
Pantanir.
Tekið er á móti pöntunum fyrir slátrun hjá Sveinbirni í síma 895-1147 sem jafnframt sér um niðurröðun og á skrifstofu í síma 455-2330. Einnig er hægt að senda óskir í netpósti á svenni@skvh.is
Afgreiðsla á heimtöku í sláturtíð frá kl. 10 – 12 og 13 – 14:30
Heimtaka skal sótt 2 – 4 dögum eftir slátrun
Fersk heimtaka skal sótt daginn eftir slátrun