Lokadagur slátrunar Posted on October 21, 2025 by Gerdur Rosa Sigurdardottir Lokadagur slátrunar hjá SKVH 2025 Síðasti sláturdagur hjá Sláturhúsi kvh verður 29. október. Ástæðan fyrir því að við höfum ekki tök á að hafa fleiri daga til slátrunar er að starfsmenn okkar eru að hverfa til síns heima aðfaranótt 30. október til annara starfa. Okkar vilji er að geta lokið sláturtíð með sóma og ekki síst með góðri samvinnu við bændur.