Sláturhús KVH óskar eftir starfsmanni í kjötvinnslu fyrtækisins.
Helstu verkefni eru sögun, pökkun á framleiðsluvörum SKVH og önnur tilfallandi störf.
Vinnutími er frá kl.07.00-15.10
Upplýsingar eru í síma 455-2330
Sláturhús KVH óskar eftir starfsmanni í kjötvinnslu fyrtækisins.
Helstu verkefni eru sögun, pökkun á framleiðsluvörum SKVH og önnur tilfallandi störf.
Vinnutími er frá kl.07.00-15.10
Upplýsingar eru í síma 455-2330
Öll verð eru á þurrvigt og án. vsk. Birt með fyrirvara um innsláttar og/eða ritvillur.
Verðskrá 2024 verður sett inn síðar en álagsgreiðslur, gjöld og skilmálar gilda fyrir 2024.
Greiðslufyrirkomulag
Innlegg 02.- 20. sept. verður greitt út 27. sept.
Innlegg 23. sept. – 04. okt. verður greitt út 11. okt.
Innlegg 07. – 18. okt. verður greitt út 25. okt.
Innlegg 21. – 31. okt. verður greitt út 08. nóv.
Sláturkostnaður
Á úrkast dilk 600 kr.stk.
Á úrkast fullorðið 1.200 kr.stk.
Verðfelling
x 6% verðfelling.
xx 12% verðfelling.
Rúið eða í tveimur reyfum kr. 850 á skrokk
Flutningur á heimtöku
Flutningur á heimtöku er innleggjanda að kostnaðarlausu á næsta móttökustað vöruflutninga (Vörumiðlun, Samskipa, Eimskipa).
Afgreiðsla beint úr afurðastöð þarf að vera á auglýstum afhendingartímum.
Heimtaka
Taka þarf fram á fylgibréfi sláturgrips, senda netpóst eða hringja inn eigi síðar en degi fyrir slátrun ef um heimtöku er að ræða. Ekki er hægt að breyta í heimtöku eftir slátrun.
Gæra, innmatur, haus og lappir fylgja ekki heimtöku.
Sláturkostnaður á heimtökudilka er kr. 5.000 á stk. Veittur er 500 kr. afsláttur til þeirra sem leggja inn meira en 100 dilka, á fyrstu 15 dilkana í heimtöku og fyrstu 7 dilkana til þeirra sem leggja inn færri en 100 dilka. Afsláttur gerður upp að lokinni sláturtíð.
Fullorðið og veturgamalt 5.500 kr.stk.
7 parta sögun (læri heil, hækill hafður á, hryggur heill, frampartar heilir og slög heil) er innifalin í sláturkostnaði.
Fínsögun 60 kr.kg.
Reglur um heimtöku má finna undir upplýsingar hér á heimasíðunni.
——————————————-
Álagsgreiðslur vegna haust 2024:
Vika | 36 | 37 | 38 | 39 | 40 | 41 til loka |
Álag | 22% | 20% | 14% | 8% | 2% | 0% |
Ekki verður greitt álag á fullorðið fé.